Birgir Leifur Hafþórsson er kominn áfram á annað stig úrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í golfi en hann lék lokahringinn á 72 höggum eða pari á Ribagolfe vellinum í Lissabon í Portúgal í dag.
Birgir Leifur lék samtals á 280 höggum eða 8 höggum undir parinu og endaði í 5.-7. sæti en 22 efstu kylfingarnir komast áfram á annað stig úrtökumótsins sem fram fer á fjórum völlum á Spáni í næsta mánuði.