Illa gekk hjá kylfingunum Ólafíu Þórunni Kristinsdóttur GR og Valdísi Þóru Jónsdóttur Leyni
á þriðja degi lokaúrtökumótsins fyrir Evrópumótaröðina í Marokkó í dag.
Ólafía lék á 77 höggum eða fimm yfir pari og Valdís á 76 höggum en þær léku ekki sama völlinn. Var þetta versti hringur Ólafíu til þessa en Valdís hefur leikið alla þrjá á sama skorinu.
Ólafía fékk tvo skramba á hringnum, einn skolla en engan fugl. Hún lék hina tvo hringina á 73 og 74 höggum. Hún er í 76. - 88. sæti á samtals átta yfir pari og þremur höggum frá áætluðum niðurskurði sem verður eftir hringinn á morgun.
Valdís Þóra er á samtals tólf yfir pari og er í 102. - 107. sæti. Skorkort hennar var öllu skrautlegra en hjá Ólafíu. Valdís nældi í þrjá fugla en fékk einnig tvo skramba og þrjá skolla.
Að loknum fimm hringjum komast þrjátíu efstu á Evrópumótaröðina, LET.