James Hahn fagnaði sínum fyrsta sigri á PGA-mótaröðinni í golfi þegar hann vann Northern Trust-mótið um helgina með ævintýralegum hætti. „Ég hefði aldrei trúað því að ég myndi vinna þetta mót,“ sagði Hahn sem starfaði sem skósali til að eiga í sig og á, áður en hann náði frama í golfinu. Hann var hársbreidd frá því að hætta í íþróttinni árið 2008 vegna fjárskorts en hélt áfram og það hefur sannarlega borgað sig.
Hahn vann Dustin Johnson á þriðju holu bráðabana mótsins eftir að Paul Casey hafði fallið úr leik á annarri holu hans.