Phil Mickelson varð fyrir því óláni að brjóta kylfu á Opna Texas mótinu sem nú stendur yfir á PGA-mótaröðinni í golfi.
8 járnið gaf sig þegar Mickelson sló úr glompu á fyrsta hring mótsins í gærkvöldi eins og sést glögglega á meðfylgjandi myndskeiði.
Kylfingar geta lent í svona löguðu af og til, sérstaklega ef kylfurnar eru farnar að eldast og illa farið með þær. Sjaldgæft er að sjá þetta henda atvinnumenn á sterkustu mótaröðunum sem skipta reglulega um kylfur. Líklega er þetta ekki sú auglýsing sem kylfuframleiðandinn Callaway gat helst hugsað sér.