Besti kylfingur heims, Norður-Írinn Rory McIlroy átti ekki góðan fyrsta hring á Opna írska meistaramótinu í golfi sem hófst í dag.
McIlroy fékk fimm skolla á fyrstu níu holunum, náði ekki að rétta úr kútnum á þeim seinni og fór hringinn á 80 höggum, níu höggum yfir pari. Hann á því verk að vinna fyrir morgundaginn ætli hann sér að komast í gegnum niðurskurðinn.
Danny Willett, Emiliano Grillo og Dane Soren Kjeldsen eru efstir og jafnir að loknum fyrsta hring á tveimur höggum undir pari.