Golfklúbburinn Keilir fagnaði sigri í 1. deild karla á Íslandsmóti golfklúbba 2016 sem lauk í dag á Korpúlfsstaðavelli. Keilir sigraði GKG í úrslitaleik 4-1. Í kvennaflokki sigraði Golfklúbbur Reykjavíkur, en GR lagði sveit Keilis í úrslitaleiknum 4,5-0,5 en úrslitaleikurinn var mjög spennandi.
Keilir Íslandsmeistari golfklúbba í 1. deild karla 2016
GR varð í þriðja sæti eftir sigur gegn GM í leik um bronsverðlaunin en GM hafði titil að verja í þessari keppni. Golfklúbbur Setbergs og Golfklúbbur Borgarness féllu úr 1. deild.
Benedikt Sveinsson og Henning Darri Þórðarson sigruðu Alfreð Brynjar Kristinsson og Egil Ragnar Gunnarsson í fjórmenningsleiknum 4/1, Axel Bóasson bætti við einum sigri fyrir Keili gegn Aroni Snæ Júlíussyni 5/4 og Gísli Sveinbergsson tryggði sigurinn með 4/3 sigri gegn Ragnari Má Garðarssyni. Tveimur leikjum var þá ekki lokið og sömdu þeir um jafntefli en þar áttust við Birgir Leifur Hafþórsson GKG og Vikar Jónasson GK, Rúnar Arnórsson GK og Ólafur Björn Loftsson GKG.
Þetta er í 14. sinn sem Keilir fagnar sigri í þessari keppni sem fékk nýtt nafn í vor en hét áður Sveitakeppni GSÍ. Keilir hefur sigrað á Íslandsmóti golfklúbba í efstu deild í þrjú skipti á síðustu fjórum árum. GM hafði titil að verja í þessari keppni.
Sigrar Keilis á Íslandsmóti golfklúbba: (1971, 1977, 1978, 1988, 1989, 1990, 1991, 1993, 2000, 2008, 2013, 2014, 2016)
Lokastaðan:
1. Golfklúbburinn Keilir
2. Golfklúbbur Kópav. og Garðab.
3. Golfklúbbur Reykjavíkur
4. Golfklúbbur Mosfellsbæjar
5. Golfklúbburinn Jökull
6. Golfklúbbur Kiðjabergs
7. Golfklúbbur Borgarness
8.Golfklúbbur Setbergs
Öll úrslit úr 1. deild karla má nálgast hér
2. deild karla
GL og GFB/GHD léku til úrslita um titilinn og eru örugg með sæti í 1. deild.
Lokastaðan:
*GS og GG falla í 3. deild.
Öll úrslit úr 2. deild karla má nálgast hér:
3. deild karla:
GN og GÍ léku til úrslita um titilinn og fara upp í 2. deild.
Lokastaðan;
*GHR féll í 4. deild ásamt Bolungarvík sem dró sig úr keppni.
Öll úrslit úr 3. deild karla má nálgast hér:
4. deild karla – öll úrslit og leikir:
GMS sigraði GO í úrslitaleik en báðir klúbbar fara upp um deild:
Lokastaðan:
Öll úrslit úr 4. deild karla má nálgast hér:
Golfklúbbur Reykjavíkur Íslandsmeistari golfklúbba í 1. deild kvenna 2016
Golfklúbbur Reykjavíkur fagnaði sigri í 17. sinn á Íslandsmóti golfklúbba í efstu deild kvenna í dag á Leirdalsvelli hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar. GR lagði sveit Keilis í úrslitaleiknum 4 ½ – ½ en úrslitaleikurinn var mjög spennandi.
Það var líka gríðarleg spenna um fall í 2. deild en GS náði að bjarga sér frá falli á kostnað NK og GO sem leika í 2. deild að ári.
Sigrar Golfklúbbs Reykjavíkur á Íslandsmóti golfklúbba (1982, 1983, 1984, 1986, 1987, 1988, 1990, 1992, 1993, 1999, 2000, 2004, 2005, 2010, 2011, 2012, 2015.)
Lokastaðan:
1. Golfklúbbur Reykjavíkur
2. Golfklúbburinn Keilir
3. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
4. Golfklúbbur Mosfellsbæjar
5. Golfklúbbur Suðurnesja
6. Nesklúbburinn
7. Golfklúbbur Akureyrar*
8. Golfklúbburinn Oddur*
GA og GO falla í 2. deild.
Öll úrslit úr 1. deild kvenna má nálgast hér:
2. deild kvenna
*GOS og GL léku til úrslita um titilinn og eru örugg með sæti í 1. deild að ári.
Lokastaðan:
Öll úrslit úr 2. deild kvenna má nálgast hér: