Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, Íslandsmeistari úr GR, er á ferð og flugi þessa dagana. Hún fór nú úr einni heimsálfunni yfir í aðra vegna anna á golfvellinum.
Eftir að hafa náð góðum árangri í Norður-Ameríku um helgina þá á hún að skila sér til Asíu í dag þar sem hún keppir í sterku móti í Evrópumótaröðinni. Þegar líður á árið ferðast Evrópumótaröðin út fyrir álfuna og á morgun hefst Sanya Ladies Open í Kína. Þar verður Ólafía á meðal keppenda en undirbúningur hennar verður með minnsta móti þar sem hún mætir á keppnisstaðinn daginn fyrir fyrsta hring.
Verður það fimmta mót hennar í Evrópumótaröðinni á þessu ári. Ólafía hefur nýtt tækifæri sín nokkuð vel og er þrátt fyrir allt í 121. sæti á peningalista mótaraðarinnar.
Sjá nánar í íþróttablaði Morgunblaðsins í dag.