Valdís heiðruð og styrkt á Akranesi

Valdís Þóra Jónsdóttir í golfskálanum á Akranesi í kvöld.
Valdís Þóra Jónsdóttir í golfskálanum á Akranesi í kvöld. Ljósmynd/GSÍ

Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir kom heim til Akraness í dag eftir að hafa tryggt sér keppnisrétt á Evrópumótaröðinni í golfi 2017 með frábærri frammistöðu á lokaúrtökumótinu sem lauk í Marokkó í gær.

Golfskálinn hjá Leyni á Akranesi var þéttsetinn í kvöld þegar fjölmenni fagnaði heimkomu Valdísar. Hún fékk fjölmargar góðar kveðjur og Þórður Emil Ólafsson formaður Leynis sagði að klúbburinn ætlaði að styrkja Valdísi um 250.000 kr. í tilefni árangursins.

Haukur Örn Birgisson forseti GSÍ, Sigurhans Vignir úr stjórn eForskots afrekssjóðs og Regína Ásvaldsdóttir bæjarstjóri Akraness héldu stuttar ræður þar sem afrek Valdísar voru rifjuð upp. Marella Steinsdóttir frá ÍA og Hlynur Geir Hjartarson þjálfari hennar héldu einnig ræður. Valdís Þóra lauk síðan kvöldinu með ræðu og ríkti mikil gleði hjá félagsmönnum úr Leyni og fjölskyldu Valdísar sem voru samankomin í golfskálanum.

Valdís Þóra Jónsdóttir var heiðruð í kvöld.
Valdís Þóra Jónsdóttir var heiðruð í kvöld. Ljósmynd/GSÍ
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert