Valdís Þóra með keppnisrétt í Ástralíu

Valdís Þóra Jónsdóttir.
Valdís Þóra Jónsdóttir. Ljósmynd/GSÍ

Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, var í kvöld útnefnd íþróttamaður ársins á Akranesi fyrir árið 2016, en þetta er í fimmta sinn sem hún hlýtur þann heiður.

Þetta eru ekki einu góðu fréttirnar hjá henni í dag, því hún staðfesti við skagafrettir.is í kvöld að hún hafi fengið keppnisrétt á fyrsta mótinu á Evrópumótaröðinni. Mótið fer fram í Ástralíu í byrjun febrúar.

„Það voru mikil gleðitíðindi og ég hef undirbúning fyrir það mót eftir fríið sem ég er í þessa dagana. Þetta var góður dagur og frábært að fá svona góðar fréttir tvívegis á sama deginum,“ sagði Valdís Þóra við skagafrettir.is.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert