Þórður lék aftur á þremur undir pari

Þórður Rafn Gissurarson
Þórður Rafn Gissurarson Ljósmynd/GSÍ

Kylfingurinn Þórður Rafn Gissurarson heldur áfram að gera það gott á Open The Tony Jacklin mótinu sem fram fer á Pro Golf mótaröðinni í Marokkó.

Þórður Rafn lék aftur í dag á 69 höggum eða þremur höggum undir pari vallarins og þegar þetta er skrifað er hann í 7.-11. sæti á samtals 138 höggum. Þórður Rafn lék 15 holur á parinu og fékk þrjá fugla alveg eins og á fyrsta hringnum í gær.

Nær öruggt má að telja að með spilamennsku sinni í dag hafi hann tryggt sér í gegnum niðurskurðinn.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert