Íslandsmeistarinn í golfi, Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, fékk eina milljón, 9.005 dollara, í sinn hlut eftir að hún hafnaði í 30. - 39. sæti á ISPS Handa-mótinu sem lauk í Ástralíu undir morgun.
Ólafía hlaut 324 þúsund íslenskar krónur fyrir árangur sinn á fyrsta móti sínu í LPGA-mótaröðinni, sem fór fram á Bahamas í lok janúar. Hún er því samtals búin að vinna sér inn rétt rúmar 1,3 milljónir íslenskra króna í verðlaunafé.
Verðlaunafé mótsins var alls 1,3 milljónir dollara, um 143 milljónir íslenskra króna, og deildu keppendurnir 75, sem komust í gegnum niðurskurðinn eftir fyrstu tvo keppnisdagana, verðlaunafénu.
Sigurvegarinn Ha Na Jang frá Suður-Kóreu, fékk 21,5 milljónir króna í sinn hlut.
Ólafía er í 51. sæti á peningalistanum að loknum tveimur mótum í LPGA-mótaröðinni.