Kylfingurinn Haraldur Franklín Magnús hafnaði í fjórða sæti á atvinnumóti á Spáni sem lauk á laugardaginn. Mótið var hluti af Nordic Golf-mótaröðinni.
Haraldur lék samtals á sex höggum undir pari. Andri Þór Björnsson hafnaði í 13. sæti á þremur höggum undir pari og Guðmundur Ágúst Kristjánsson var í 23. sæti á parinu.
Axel Bóasson komst hins vegar ekki í gegnum niðurskurðinn en hann lék á einu höggi yfir pari.