Sjónvarpsáhorfandi kom upp um svindl

Lexi Thompson var eyðilögð undir lok móts.
Lexi Thompson var eyðilögð undir lok móts. AFP

Kylfingurinn Lexi Thompson var gráti næst eftir að hafa tapað í bráðabana á fyrsta risamóti ársins, ANA Inspiration. Það sem meira er, það er allt vegna sjónvarpsáhorfanda.

Thompson gerði sig seka um að koma merktum bolta rangt fyrir á hringnum á laugardag og sjónvarpsáhorfandi kom skilaboðum um það áleiðis til dómara. Á því augnabliki var hún langt komin á síðasta hringnum í gær og hafði tveggja högga forystu á mótinu, en fékk fyrir vikið fjögur högg í víti.

Það sem Thompson gerði er að þegar hún merkti bolta sinn á flöt setti hún merkinguna við hlið boltans. Þegar hún svo kom boltanum aftur fyrir í púttinu setti hún hann niður fyrir framan merkið, en ekki við hliðina eins og hún hefði átt að gera.

Að lokum fór hún í bráðabana við So Yeon Ryu, sem vann um leið sinn annan risatitil. Thompson var eyðilögð, en hún sagðist hafa gert mistök sem hún vissi ekki af.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert