Dustin Johnson, efsti maður heimslistans í golfi, verður ekki með á Masters-mótinu í golfi sem fyrsta risamót ársins.
Johnson datt í stiganum í húsinu sem hann er með á leigu í nágrenni Augusta-vallarins þar sem mótið fer fram, en hann lenti illa og varð fyrir hnjaski neðarlega í baki. Hann mætti út á fyrsta teig og hugðist taka þátt í mótinu en ákvað síðan að draga þátttöku sína til baka.
Johnson vann sinn þriðja mót í röð í lok mars og hefur alls unnið 7 af 17 mótum sem hann hefur tekið þátt í síðan hann vann Opna bandaríska meistaramótið í júní síðastliðnum.