Atvinnukylfingurinn Ólafía Þórunn Kristinsdóttir verður á meðal keppenda á LOTTE/HERSHEY mótinu á LPGA mótaröðinni sem fram fer á Honolulu eyju sem er hluti af Hawaii eyjaklasanum í Bandaríkjunum.
Flestir af bestu kylfingum heims verða á meðal keppenda og má þar nefna Lydia Ko, sem er efst á heimslistanum og So Yeon Ryu, sem er í öðru sæti á heimslistanum.
Þetta verður fimmta mótið hjá Ólafíu Þórunni á sterkustu atvinnumótaröð heims. Hún komst í gegnum niðurskurðinn á fyrstu tveimur mótunum en ekki á síðustu tveimur mótunum.
Ólafía hefur leik kl. 1.45 að staðartíma miðvikudaginn 12. apríl eða kl. 23.45 á Íslandi. Hún verður í ráshóp með Annie Park frá Bandaríkjunum og Hye Jin Choi frá Suður-Kóreu.