Valdís Þóra Jónsdóttir er fínni stöðu á Lalla Meryem-mótinu í golfi sem fram fer í Marokkó um þessar mundir. Hún hefur lokið við að spila fyrri níu holurnar á öðrum hring mótsins og fer hún í gegnum niðurskurðinn með þessu áframhaldi.
Kylfingurinn hefur fengið tvo fugla, tvo skolla og fimm pör á hringnum fram að þessu. Hún er sem stendur einu höggi fyrir ofan niðurskurðarlínuna á samtals fjórum höggum yfir pari vallarins.
Sem stendur nægir að vera á fimm höggum yfir pari vallarins til að komast í gegnum niðurskurðinn á mótinu.