Bjarki hrósaði sigri á bandarísku háskólamóti

Bjarki Pétursson.
Bjarki Pétursson. mbl.is/Árni Sæberg

Bjarki Pétursson sigraði í einstaklingskeppninni á Boilermaker Invitational háskólamótinu í Bandaríkjunum. Skólalið Bjarka og Gísla Sveinbergssonar, Kent State, stóð uppi sem sigurvegari í liðakeppninni á þessu móti. Þetta kemur fram á golf.is.

Bjarki lék hringina þrjá á -4 samtals og var einu höggi betri en liðsfélagi hans hjá Kent State, Josh Whalen. Þetta er annar sigur Bjarka á háskólamóti á ferlinum. Gísli endaði í 13. sæti í einstaklingskeppninni en hann lék á +3 yfir pari á 54 holum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert