Ólafía Þórunn Kristinsdóttir hefur leik klukkan 19 í kvöld að íslenskum tíma í útjaðri Dallas í Texas, á Las Colinas-vellinum, en þar keppir hún á sínu sjötta LPGA-móti. Þá er klukkan 14 að staðartíma.
Ólafía í ráshópi með Dori Carter frá Bandaríkjunum og Giula Molinaro frá Ítalíu fyrstu tvo keppnisdagana.
Mótið er sérstakt að því leyti að keppendum er fækkað tvisvar. Að vanda komast um 70 efstu áfram eftir fyrstu tvo dagana, en eftir þriðja hringinn á laugardaginn komast 50 efstu áfram og spila lokahringinn á sunnudaginn. Meðal keppenda eru allir sem eru í efstu 20 sætum heimslistans.