Valdís Þóra Jónsdóttir lék annan hring sinn á 70 höggum eða einu höggi undir pari vallarins á Foxconn Czech Ladies-mótinu í LET Access-mótaröðinni, næststerkustu mótaröð Evrópu í golfi í dag.
Kylfingurinn fékk fjóra fugla, þrjá skolla og ellefu pör á holunum 18 í dag. Valdís lék á 68 höggum, eða þremur höggum undir pari vallarins, í gær og er hún samtals á fjórum höggum undir pari. Valdís er í fjórða sæti, en þrír kylfingar eru eftir og jafnir á fimm höggum undir pari.