Jordan Spieth tryggði sér sigur á Travelers-meistaramótinu í golfi með ævintýralegum hætti í bráðabana í Connecticut í kvöld.
Spieth og Daniel Berger voru jafnir eftir fjóra hringi á -12 höggum undir pari, eftir að Berger hafði fengið þrjá fugla á síðustu sex brautunum. Því tók við bráðabani þar sem Spieth setti boltann ofan í sandgryfju Hann náði hins vegar að tryggja sér sigur með því að slá boltann úr sandgryfjunni og beint ofan í holuna, við gríðarlegan fögnuð viðstaddra. Sjón er sögu ríkari.
.@JordanSpieth has won the @TravelersChamp in INCREDIBLE fashion.
— PGA TOUR (@PGATOUR) June 25, 2017
UNBELIEVABLE! 😱🏆#QuickHits pic.twitter.com/qkeeaCg3ye