Birgir Leifur Hafþórsson er í 46. sæti stigalistans á Áskorendamótaröð Evrópu í golfi eftir frábæra frammistöðu á móti í Danmörku í gær. Birgir lék þá lokahringinn á mótinu á 67 höggum, fimm höggum undir pari, og endaði í 11. sæti mótsins. Aðeins einn kylfingur lék á betra skori en Birgir í gær. Hann varð fimm höggum á eftir sigurvegaranum.
Þetta var fimmta mót Birgis á tímabilinu á Áskorendamótaröðinni og er staða hans á stigalistanum sú besta sem hann hefur náð, samkvæmt vef Golfsambandsins.