Kylfingarnir Axel Bóasson, Andri Þór Björnsson, Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús hófu leik í gær á GolfUppsala Open-mótinu sem er hluti af Nordic Golf-mótaröðinni.
Axel lék best íslensku kylfinganna á fyrsta hringnum en hann lék hann á þremur höggum undir pari og er í 15. sæti. Andri Þór lék á tveimur höggum undir parinu og er í 21. sæti, Guðmundur Ágúst lék á einu höggi undir pari og er í 35. sæti og Haraldur Franklín spilaði á tveimur höggum yfir parinu og er í 55. sæti.