Atvinnukylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir lauk leik í 19.-26. sæti á WPGA International Challenge mótinu í golfi sem er hluti af LET Access mótaröðinni og lauk í gær.
Valdís Þóra lék lokahringinn á tveimur höggum undir pari vallarins í gær, en hún fékk þrjá fugla og einn skolla á hringnum í gær. Valdís Þóra lék hringina þrjá samtals á einu höggi undir pari.
Valdís Þóra lék sinn besta hring á mótinu í gær, en WPGA International Challenge-mótið er fimmta mót Valdísar Þóru á LET Access-mótaröðinni í ár. Valdís Þóra hefur eftir þennan árangur fjórum sinnum hafnað í efstu 25 sætum á mótaröðinni á tímabilinu.