Valur burstaði ÍBV

Ágústa Edda Björnsdóttir skoraði 5 mörk fyrrir Val í kvöld.
Ágústa Edda Björnsdóttir skoraði 5 mörk fyrrir Val í kvöld. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Valur rótburstaði Íslandsmeistara ÍBV, 38:21, í DHL-deild kvenna í handknattleik í kvöld. Eins og tölurnar gefa til kynna voru yfirburðir Valskvenna miklir en staðan í leikhléi var, 20:8. Rebekka Skúladóttir, Guðrún Drífa Hólmgeirsdóttir og Hildigunnur Einarsdóttir skoruðu 7 mörk hver fyrir Val en hjá ÍBV var Pavla Plaminkova lang markahæst með 12 mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert