Haukar í bikarúrslit gegn Gróttu

Haukar komust í kvöld í bikarúrslitin í handknattleik kvenna með því að vinna öruggan sigur á Val, 25:18, í undanúrslitunum á Ásvöllum í kvöld. Það verða því Haukar og Grótta sem mætast í úrslitaleiknum.

Úrslitin voru nánast ráðin í hálfleik því þá voru Haukar komnir með yfirburðastöðu og staðan 14:3, hreint ótrúlegar tölur.

Sandra Stojkovic skoraði 7 mörk fyrir Hauka og Hanna G. Stefánsdóttir 6. Hjá Val var Drífa Skúladóttir markahæst með 6 mörk.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert