Haukar bikarmeistarar í kvennaflokki

Haukar fagna sigrinum í dag í Laugardalshöll.
Haukar fagna sigrinum í dag í Laugardalshöll. mbl.is

Haukar urðu bikarmeistarar í handknattleik kvenna í dag þegar liðið lagði Gróttu 26:22, í Laugardalshöllinni. Staðan í hálfleik var 12:10, Haukum í vil. Ramune Pekarskyte og Hanna G. Stefánsdóttir gerðu 7 mörk hvor fyrir Hauka en hjá Gróttu var Natasa Damlanovic með 8 mörk. "Mér fannst við betra liðið í dag og sigurinn var því alveg sanngjarn. Við byrjuðum reyndar ekki nógu vel, vorum dálítið stressaðar, en svo small vörnin ágætlega saman og þá var þetta komið," sagði Hanna G. Stefánsdóttir, hornamaður Hauka, ánægð í leikslok.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert