Íþróttir
|
Handbolti
| mbl
| 28.9.2007
| 16:33
Glæsilegur sigur hjá Stjörnunni
Rakel Dögg Bragadóttir skoraði 7 mörk fyrir Stjörnuna. Þorvaldur Örn Kristmundsson
Stjarnan hafði yfir allan tímann og í leikhléi var munurinn fimm mörk, 11:6. Í franska liðinu er uppistaðan leikmenn úr franska landsliðinu og sigur Stjörnukvenna því afar glæsilegur.
Rakel Dögg Bragadóttir og Ásta B. Agnarsdóttir voru atkvæðamestar í liði Stjörnunnar með 7 mörk hver og þá átti Florentina Grecu markvörður frábæran leik en hún varði 23 skot í leiknum.
© Árvakur hf.
Öll réttindi áskilin






