Evrópumeisturum fagnað

Dönsku landsliðsmennirnir á tröppum Ráðhússis. stækka

Dönsku landsliðsmennirnir á tröppum Ráðhússis. Reuters

Dönsku Evrópumeisturunum í handbolta var fagnað vel þegar þeir komu til Kaupmannahafnar nú síðdegis. Talið er að 25 þúsund mann hafi verið á Ráðhústorginu þegar dönsku hetjurnar komu út á svalir Ráðhússins og sýndu verðlaunagripinn.

Friðrik krónprins kíkti við í Ráðhúsinu til að heilsa upp á handboltamennina en Ritt Bjerregaard, yfirborgarstjóra, bauð prinsinum þangað.

Um 5000 manns voru einnig samankomnir á Kastrupflugvelli þegar flugvél Evrópumeistaranna kom þangað eftir að hafa fengið fylgd danska orrustuflugvéla síðasta spölinn.

Þótt Danir fögnuðu vel í dag var fögnuðurinn þó enn meiri þegar Danir urðu Evrópumeistarar í knattspyrnu árið 1992. Þá er talið að 100 þúsund manns hafi komið saman á Ráðhústorginu til að taka á móti leikmönnunum.

Friðrik krónprins veifar til viðstaddra á Ráðhústorginu.

Friðrik krónprins veifar til viðstaddra á Ráðhústorginu. Reuters

Lars Rasmussen í faðmi aðdáenda á Ráðhústorginu.

Lars Rasmussen í faðmi aðdáenda á Ráðhústorginu. Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Sunnudaginn 27. maí

Laugardaginn 26. maí

Föstudaginn 25. maí

Fimmtudaginn 24. maí

Miðvikudaginn 23. maí

Þriðjudaginn 22. maí

Sunnudaginn 20. maí

Laugardaginn 19. maí

Föstudaginn 18. maí

Fimmtudaginn 17. maí

Miðvikudaginn 16. maí

Þriðjudaginn 15. maí

Mánudaginn 14. maí

Sunnudaginn 13. maí

Laugardaginn 12. maí


finnur.is