Trotsenko skoraði 15 mörk og tryggði ÍBV sigur

Gintaras Savukynas er þjálfari ÍBV.
Gintaras Savukynas er þjálfari ÍBV. Árvakur/Árni Sæberg

Botnlið ÍBV gerði sér lítið fyrir og sigraði Stjörnuna, 34:33, í N1-deild karla í handknattleik í dag. Þetta er aðeins annar sigur ÍBV í deildinni það sem af er keppnistímabilinu.

Sergiv Trotsenko tryggði ÍBV sigur 2 sekúndum fyrir leikslok með þrumuskoti langt utan af velli. Þetta var jafnframt 15. mark hans í leiknum. Sigurður Bragason skoraði 8 mörk fyrir ÍBV. Ólafur Víðir Ólafsson skoraði 9 mörk fyrir Stjörnuna og Heimir Örn Árnason var með 6 mörk

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert