Birkir Ívar samdi við Hauka

Birkir Ívar Guðmundsson.
Birkir Ívar Guðmundsson. mbl.is/Brynjar Gauti

Birkir Ívar Guðmundsson, landsliðsmarkvörður í handknattleik, hefur skrifað undir samning við Íslandsmeistaralið Hauka og skrifaði hann undir samning til þriggja ára. Birgkir hefur leikið með þýska liðinu Lübbecke undnfarin tvö tímabil en hann var áður í herbúðum Hauka. 

Birkir Ívar er 32 ára og hefur leikið 145 landsleiki fyrir Ísland. Hann er núna í landsliðshópi Íslands sem leikur þrjá leiki í undankeppni fyrir ÓL í Peking í Póllandi um helgina.

Nánar í Morgunblaðinu á morgun.  

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert