Þór vann Norðurlandsmótið

Lárus Orri Sigurðsson þjálfari Þórs.
Lárus Orri Sigurðsson þjálfari Þórs. www.thorsport.is

Þór bar sigurorð á Norðurlandsmótinu, Soccerademótinu, þegar liðið lagði granna sína og erkifjendur í KA, 1:0, í úrslitaleik sem háður var í Boganum.

Einar Sigþórsson skoraði sigurmark Þórsara snemma leiks. Þetta er í fjórða skiptið sem Þórsarar vinna mótið á þeim sjö árum sem það hefur verið haldið. KA hefur unnið í hin þrjú skiptin og hafði sigrað tvö ár í röð.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert