Hampa Akureyringar fyrsta titlinum?

Oddur Gretarsson hornamaðurinn knái í liði Akureyrar. stækka

Oddur Gretarsson hornamaðurinn knái í liði Akureyrar. Golli/Kjartan Þorbjörnsson

Lið Akureyrar  getur í kvöld tryggt sér fyrsta titilinn í sögu félagsins en takist liðinu að leggja HK-inga að velli í Digranesi í 3. síðustu umferð deildarinnar í kvöld verður Akureyrarliðið deildarmeistari.

Þrír leikir fara fram í N1-deildinni í kvöld. HK og Akureyri eigast við í Digranesi klukkan 18.30 og klukkutíma síðar hefja Selfoss og FH leik á Selfossi og í Vodafone-höllinni eigast við Valur og Afturelding.

Akureyringar eru með fjögurra stiga forskot í toppsæti deildarinnar og með sigri gegn HK er ljóst að Akureyri verður deildarmeistari. FH er eina liðið sem getur náð Akureyri að stigum en norðanliðið hefur betur í innbyrðisviðureignum á móti FH.

Leikir kvöldsins eru:

18.30 HK - Akureyri (Digranes)
19.30 Selfoss - FH (Digranesi)
19.30 Valur - Afturelding (Vodafone-höllinni)

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Íþróttir, Handbolti — Fleiri fréttir

Í dag

Í gær

Þriðjudaginn 21. febrúar

Sunnudaginn 19. febrúar

Laugardaginn 18. febrúar

Föstudaginn 17. febrúar

Fimmtudaginn 16. febrúar

Miðvikudaginn 15. febrúar


finnur.is