Ásbjörn Friðriksson, leikstjórnandi FH-liðsins, segir eftir að varnarleikur liðsins small saman í kvöld gegn Fram hafi ekki leikið vafi á hjá hvoru liðinu sigurinn mundi hafna.
„Við töluðum um það í hálfleik að keyra á Framarana í byrjun síðari hálfleiks á meðan þeir væru einum og tveimur leikmönnum færri. Sú áætlun gekk fullkomlega upp," sagði Ásbjörn eftir sigur á Fram í kvöld, 32:21, í oddaleik í undanúrslitum í Kaplakrika.
FH er komið í úrslit á Íslandsmótinu í handknattleik karla í fyrsta sinn í 12 ár.