Guðjón Finnur til Fram

Guðjón Finnur Drengsson og Magnús Gunnar Erlendsson eru samherjar á …
Guðjón Finnur Drengsson og Magnús Gunnar Erlendsson eru samherjar á ný hjá Fram. Þorvaldur Örn Kristmundsson

Hornamaðurinn Guðjón Finnur Drengsson hefur fengið félagsskipti úr Selfossi yfir í sitt uppeldisfélag, Fram. Hann getur þar með verið í hópnum hjá toppliði Fram þegar það fær HK í heimsókn í Safamýri í kvöld en þá fer fimmta umferð deildarinnar fram.

Guðjón Finnur lék með Selfossi í N1-deildinni á síðustu leiktíð en hefur nær allan sinn feril að öðru leyti leikið með Fram fyrir utan nokkurra mánaða dvöl hjá Kassel í Þýskalandi árið 2009. Hann hefur ekkert komið við sögu í leikjum Selfoss í 1. deildinni á yfirstandandi keppnistímabili.

Auk viðureignar Fram og HK í Safamýrinni í kvöld þá fær Akureyri Valsmenn í heimsókn í Íþróttahöllina á Akureyri klukkan 19. Íslandsmeistarar FH leika við nýliða Gróttu í Kaplakrika og Afturelding og Haukar leiða saman hesta sína að Varmá. Allir leikirnir hefjast klukkan 19.30 nema viðureign Akureyrar og Val sem byrjar hálftíma fyrra.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka