Handknattleiksdeild KA hefur ákveðið að draga lið KA/Þór úr efstu deild í kvennahandbolta og senda liðið í 2. deild/Utandeild í staðinn. Þetta kemur fram í yfirlýsingu á heimasíðu KA.
Í yfirlýsingunni segir;
„Ástæðan er sú að liðið hefur misst 5 reynslumestu leikmenn sína frá síðasta keppnistímabili, þar af tvo í þessari viku. Því telur stjórn Handkattleiksdeildar KA að yngri leikmönnum sé enginn greiði gerður með því að senda þær í efstu deild, en aðeins 2-3 stúlkur í hópnum hafa reynslu af því að leika þar.
Stefnan er sett á markvissar æfingar í vetur og keppni með það að markmiði að eiga aftur lið á meðal þeirra bestu á næsta hausti.“
12 voru skráð til leiks í N1-deildinni en nú er ljóst að þau verða 11. Keppni í deildinni hefst laugardaginn 22. september.