ÍBV hafði betur gegn FH, 29:26, í framlengdum leik í átta liða úrslitum N1-deildar kvenna en liðin áttust við í Vestmannaeyjum í kvöld.
Staðan eftir venjulegan leiktíma var jöfn, 24:24, en Eyjakonur reyndust sterkari í framlengingunni. Staðan í hálfleik var, 14:12, ÍBV í vil.
Mörk ÍBV: Guðbjörg Guðmannsdóttir 7, Simona Vintale 6, Ester Óskarsdóttir 4, Drífa Þorvalsdóttir 4, Grigore Gorgata 3, Sandra Dís Sigurðardóttir 2, Ingibjörg Jónsdóttir 2, Sandra Gísladóttir 1.
Mörk FH: Ásdís Sigurðardóttir 8, Birna Íris Helgadóttir 5, Ingibjörg Pálmadóttir 4, Þórey Anna Ásgeirsdóttir 3, Aníta Mjöll Ægisdóttir 2, Berglind Ósk Björgvinsdóttir 2, Elín Anna Baldursdóttir 1, Steinunn Snorradóttir 1.