Róbert Aron: Fylgdi bara skotinu vel eftir

„Þetta var rosalegur leikur og gott að ná sigri og losna við oddaleik,“ sagði Róbert Aron Hostert eftir sigurinn á FH í dag.

Róbert Aron gerði sigurmarkið í blálokin. „Ég var fúll yfir að það missa boltann í sókninni á undan, en það var slegið í höndina á mér og ég vildi fá aukakast. Svo fórum við í sókn og það var smá tími eftir og ég náði að skjóta þó það væri maður í mér og náði að fylgja skotinu vel eftir,“ sagði Róbert Aron.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka