Dagur Sigurðsson og lærisveinar í Füchse Berlin eru komnir áfram í úrslitaleik þýsku bikarkeppninnar í handknattleik eftir sigur á Melsungen, 30:28, í undanúrslitum í dag.
Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik en að honum loknum var Füchse tveimur mörkum yfir, 15:13. Bilið jókst í síðari hálfleik og mest náðu Dagur og félagar fjögurra marka forystu en þegar yfir lauk munaði tveimur mörkum á liðunum eftir góðan endasprett Melsungen, lokatölur 30:28.
Konstantin Igropulo var markahæstur hjá Füchse með sjö mörk eins og Feliz Danner hjá Melsungen.
Füchse Berlin leikur til úrslita við Flensburg sem hafði betur gegn Rhein-Neckar Löwen fyrr í dag.