Þórir Ólafsson og félagar hans í Kielce urðu í kvöld pólskir bikarmeistarar í handknattleik sjötta árið í röð. Kielce bar sigurorð af Wisla Plock, 33:32, í æsispennandi úrslitaleik þar sem Michał Jurecki skoraði sigurmarkið á lokasekúndum leiksins.
Þórir skoraði 3 af mörkum Kielce en markahæstur var pólski landsliðsmaðurinn Karol Bielecki með 9 mörk og Michał Jurecki skoraði 6.