Þröstur Þráinsson, hornamaður í liði deildarmeistara Hauka, var í dag úrskurðaður í eins leiks bann af aganefnd HSÍ.
Þröstur fékk útilokun með skýrslu vegna brots á lokamínútunni í leik Hauka og Akureyrar á mánudaginn. Þröstur verður því ekki með Haukunum í fyrsta leiknum á móti FH í undanúrslitum Olís-deildarinnar sem fram fer að Ásvöllum á þriðjudaginn í næstu viku.