Grétar framlengdi við ÍBV

Handboltamaðurinn Grétar Þór Eyþórsson hefur gert nýjan eins árs samning við Íslandsmeistara ÍBV um að leika með félaginu áfram. Grétar hafði áður gefið það út að hann ætlaði sér að hætta eftir síðustu leiktíð en hefur nú snúist hugur.

Grétar sem leikur sem hornamaður lék mikilvæga rullu hjá ÍBV þegar liðið varð Íslandsmeistari í vor.

„Það var í raun bara uppgangurinn á síaðsta ári sem gerði útslagið með ákvörðunina. Svo voru stuðningsmennirnir og annað sem gerði það að verkum að maður verður að taka annað ár og upplifa þetta aftur,“ sagði Grétar eftir að hafa skrifað undir samninginn.

Viðtal við Grétar má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.

Grétar Eyþórsson og Arnar Pétursson í stjórn handknattleiksdeildar ÍBV við …
Grétar Eyþórsson og Arnar Pétursson í stjórn handknattleiksdeildar ÍBV við undirskriftina um borð í Herjólfi. Ljósmynd/Eyjafréttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert