KA/Þór hefur ráðið Gunnar Erni Birgisson sem þjálfara liðsins fyrir komandi átök í Olís-deild kvenna í handknattleik í vetur. Martha Hermannsdóttir verður honum til aðstoðar.
Gunnar Ernir var aðstoðarþjálfari KA/Þórs í fyrravetur. Martha hefur verið máttarstólpi í liðinu síðustu ár og mun áfram spila meðfram aðstoðarþjálfarahlutverkinu. Hún er einmitt kona Heimis Arnar Árnasonar, annars af þjálfurum Akureyrar í Olís-deild karla.