Keppni hefst á ný í þýsku 1. deildinni í handbolta í dag eftir sumarfrí. Níu Íslendingar leika í deildinni og þar eru svo þrír þjálfarar að auki eins og má sjá í yfirlitinu á meðfylgjandi mynd.
Kiel hefur meistaravörn sína í dag á útivelli gegn Lemgo. Sex leikir eru á dagskrá í deildinni í dag og þrír á morgun. Það dugar þó ekki til að klára 1. umferð deildarinnar, þar sem 19 lið eru í deildinni í vetur.
1. umferðin
23. ágúst kl. 17.00 Hannover-Burgdorf - Melsungen
23. ágúst kl. 17.00 Bergischer - Bietgheim
23. ágúst kl. 17.00 Flensburg - Friesenheim
23. ágúst kl. 17.00 Lemgo - Kiel
23. ágúst kl. 18.15 Göppingen - Füchse Berlín
23. ágúst kl. 18.15 Erlangen - N-Lübbecke
24. ágúst kl. 13.00 Gummersbach - Hamburg
24. ágúst kl. 15.15 Minden - Wetzlar
24. ágúst kl. 15.15 RN Löwen - Magdeburg