Keppnistímabilið í handknattleik kvenna hefst í dag af alvöru þegar keppt verður um nafnbótina meistarar meistaranna þegar Íslandsmeistarar Vals taka á móti deildarmeisturum Stjörnunnar í Vodafonehöllinni á Hlíðarenda.
Valskonur urðu einnig bikarmeistarar á síðustu leiktíð en lið þeirra er mikið breytt þar sem fjöldi leikmanna hefur horfið á braut. Búast má við hörkuleik en leikar hefjast kl 13:30.