Stjarnan meistari meistaranna

Stjörnukonur fagna titlinum.
Stjörnukonur fagna titlinum. mbl.is/Eggert

Stjarnan varð í dag meistari meistaranna í handbolta kvenna eftir sjö marka sigur á Valskonum 30:23 á Hlíðarenda. Valskonur sem urðu Íslands- og bikarmeistarar á síðustu leiktíð höfðu hins vegar yfirhöndina í hálfleik gegn deildarmeisturum Stjörnunnar 14:11.

Lið Vals er mikið breytt frá síðustu leiktíð og tefla Hliðarendastúlkur fram ansi ungu liði í ár sem stóð sig virkilega vel í fyrri hálfleik. Sterkur síðari hálfleikur Stjörnunnar tryggði þeim hins vegar sigurinn en mestur fór munurinn í átta mörk í leiknum.

Í liði Stjörnunnar var Þórhildur Gunnarsdóttir markahæst með sjö mörk en markahæstar hjá liði Vals voru Bryndís Wöhler og Kristín Guðmundsdóttir báðar með fimm mörk.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert