Aron Pálmarsson skoraði 4 mörk fyrir þýsku meistarana í Kiel þegar liðið burstaði Melsungen, 32:23, í þýsku 1. deildinni í handknattleik í dag.
Eins og lokatölur gefa til kynna voru yfirburðir Kiel miklir. Svíinn Niclas Edberg fór mikinn í liði Kiel en hann skoraði 11 mörk í leiknum.
Lærisveinar Dags Sigurðssonar í Füchse Berlin unnu öruggan sigur á Balingen á heimavelli sínum, 30:23.
Rhein-Neckar Löwen er í toppsætinu með 10 stig, Göppingen 9, Kiel 8, Magdeburg 7.