„Bara hálfleikur í einvíginu“

Þjálfari ísraelska liðsins Maccabi Rishon Lezion var nokkuð sáttur við leik sinna manna gegn Íslandsmeisturum ÍBV í gær en liðin áttust við í Eyjum í gær í fyrri leik liðanna í EHF-keppninni í handknattleik þar sem Maccabi hafði betur, 30:25. Liðin eigast aftur við í Eyjum í dag klukkan 14.

„Ég var nokkuð ánægður með leik minna manna en við gerðum okkur þó seka um full mikið af tæknimistökum og misstum til að mynda 15 bolta í leiknum. En þrátt fyrir fimm marka sigur er bara hálfleikur í þessu einvígi,“ sagði þjálfari ísraelska liðsins við mbl.is eftir leikinn en allt viðtalið er hægt að skoða í spilaranum hér að ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert