Gunnar Magnússon þjálfari ÍBV segir að sínir menn geti vel komist áfram í EHF-keppninni í handknattleik þrátt fyrir fimm marka tap gegn ísraelska liðinu Maccabi Rishon Lezion í Eyjum í gær en liðin mætast öðru sinni í Eyjum klukkan 14 í dag.
„Við Eyjamenn höfum séð það svartara en þetta og eigum við ekki að segja að við förum Eyjaleiðina að þessu eins og öllu öðru,“ sagði Gunnar við mbl.is eftir leikinn.