„Lélegir í vörn og sókn og lítil markvarsla“

Gunnar Magnússon, þjálfari ÍBV sagði í samtali við mbl.is eftir tap sinna manna gegn ÍR í Eyjum, að allt hafi farið úrskeiðis hjá sínum mönnum. 

„Já nánast allt.  Það stóð ekki steinn yfir steini og í dag brotnuðum við.  Við vorum í miklum vandræðum bæði í vörn og sókn og varla varinn bolti fyrstu 45 mínúturnar, sem gerir þetta okkur erfitt.  En að sama skapi vorum við varnarlega ekki nógu góðir og vorum ekki að leysa þetta nógu vel í dag enda vorum við að breyta bæði hafsent og senter.  Við höndluðum ekki mótlætið og því fór sem fór,“ sagði Gunnar.

Viðtalið við Gunnar má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert