Tandri Már Konráðsson og félagar í Ricoh töpuðu fyrir Hammarby á útivelli, 27:21, í sænsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Ricoh var marki yfir í hálfleik, 9:8, en Hammarby sneri taflinu við í síðari hálfleik.
Tandri Már var markhæstur hjá Ricoh með sex mörk. Ricoh er nýliði í deildinni. Liðið hefur unnið einn en tapað þremur leikjum í fyrstu fjórum umferðum sænsku úrvalsdeildarinnar.